Dortmund framlengir við Reyna og lánar hann til Forest (Staðfest)

Mynd: Nottingham Forest

Mynd: Nottingham Forest
Bandaríski landsliðsmaðurinn Giovanni Reyna skrifaði í kvöld undir lánssamning hjá enska úrvalsdeildarfélaginu Nottingham Forest, en hann kemur frá Borussia Dortmund.
Reyna er 21 árs gamall sóknarsinnaður miðjumaður sem getur einnig spilað á vængnum.
Leikmaðurinn er fæddur og uppalinn í Bandaríkjunum, en hann er sonur Claudio Reyna, sem spilaði með liðum á borð við Bayer Leverkusen, Sunderland og Manchester City.
Gio fór til Dortmund árið 2019 og náði strax að brjóta sér leið inn í aðalliðið, en síðan þá hefur hann spilað 121 leik og gert 17 mörk.
Á þessu tímabili hefur hann lítið fengið að spila og samþykkti hann því að fara til Nottingham Forest út þetta tímabil. Forest tilkynnti komu hans í kvöld.
Forest er ekki með kaupákvæði í lánssamningnum og snýr því Reyna aftur til Dortmund í sumar. Hann skrifaði í leiðinni undir framlengingu á samningi sínum í Þýskalandi og gildir sá samningur til 2026.

Reyna in Red ???? pic.twitter.com/Q4LXLGSci0
— Nottingham Forest (@NFFC) January 31, 2024