Fotbolti.net
31.01.24 - 20:55
Brynjar Ingi Erluson

Lemina-bræður sameinaðir hjá Wolves (Staðfest)

Mario og Noah Lemina

Mario og Noah Lemina

Canon

Mynd: Wolves

Enska úrvalsdeildarfélagið Wolves staðfesti í kvöld félagaskipti Noah Lemina frá Paris Saint-Germain, en hann kemur á láni út leiktíðina.
Noah er 18 ára gamall miðjumaður sem er uppalin hjá PSG, en hann eyddi fyrri hluta tímabilsins á láni hjá Sampdoria.

PSG kallaði hann til baka á dögunum og hefur nú sent hann strax til Wolves á láni út tímabilið.

Wolves er með 1 milljón evra kaupákvæði í samningnum og ef Úlfarnir kjósa að nýta það mun PSG fá 25 prósent hagnað af næstu sölu.

Mario Lemina, bróðir Noah, er á mála hjá Wolves, en hann kom til félagsins frá Nice á síðasta ári.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.