Man Utd lánar Pellistri til Granada (Staðfest)

Mynd: Granada

Mynd: Granada
Manchester United hefur lánað úrúgvæska vængmanninn Facundo Pellistri til spænska félagsins Granada út tímabilið.
Pellistri, sem er 22 ára gamall, hefur verið á mála hjá United frá 2020, en aldrei tekist að brjóta sér leið inn í liðið.
Á þessu tímabili spilaði hann aðeins 14 leiki og lagði upp eitt mark, en mínútufjöldi hans á vellinum var aðeins 366 mínútur.
United samþykkti því að lána hann frá félaginu út þessa leiktíð og valdi hann að fara til Granada.
Granada greiðir laun hans á meðan hann dvelur hjá félaginu.
Pellistri er að fara inn í krefjandi aðstæður en Granada situr í næst neðsta sæti deildarinnar með aðeins 11 stig.