Fotbolti.net
31.01.24 - 16:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Sigurður Hrannar í Ægi (Staðfest)

Sigurður Hrannar í Ægi (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sigurður Hrannar Þorsteinsson er mættur til Ægis á láni frá ÍA. Hann mun spila með Ægi í 2. deildinni í sumar.

Sigurður Hrannar lék í 2. deild í fyrra og skoraði þar tólf mörk í 21 leik með Vöslungi. Einungis þrír leikmenn skoruðu meira en hann í deildinni á síðasta tímabili.

Hann er 23 ára sóknarmaður sem uppalinn er á Skaganum en hefur á ferli sínum einnig leikið með Kára og Gróttu, ásamt svo Völsungi í fyrra. Hann er samningsbundinn ÍA út komandi tímabil.
Anton Fannar framlengir við Ægi - Mijatovic áfram
TENGT EFNI

Anton Fannar framlengir við Ægi - Mijatovic áfram

Ægir féll úr Lengjudeildinni síðasta haust. Sigurður Hrannar er annar leikmaðurinn sem liðið fær í vetur því snemma í vetur samdi markvörðurinn Andri Þór Grétarsson við félagið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.