Fotbolti.net
31.01.24 - 20:26
Brynjar Ingi Erluson

Juventus fær Alcaraz á láni frá Southampton (Staðfest)

Juventus fær Alcaraz á láni frá Southampton (Staðfest)
Canon

Mynd: Juventus

Argentínski miðjumaðurinn Carlos Alcaraz er kominn til ítalska stórliðsins Juventus á láni frá Southampton.
Markmið Juventus í þessum glugga var að fá miðjumann í ljósi þess að Paul Pogba og Nicolo Fagioli voru settir í bann.

Juventus skoðaði nokkra kosti í þessum glugga en hefur nú fundið sinn mann.

Argentínski miðjumaðurinn Carlos Alcaraz er kominn til félagsins á láni frá Southampton í ensku B-deildinni.

Juventus getur keypt hann fyrir 45 milljónir punda á meðan lánsdvölinni stendur.

Alcaraz kom til Southampton frá Racing Club fyrir þetta tímabil og hafði komið að sjö mörkum í 27 leikjum með liðinu í öllum keppnum.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.