Fotbolti.net
31.01.24 - 17:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Rúnar Gissurar snýr aftur til Keflavíkur (Staðfest)

Rúnar Gissurar snýr aftur til Keflavíkur (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
Rúnar Gissurarson er mættur aftur til Keflavíkur eftir að hafa leikið með Þrótti Vogum seinni hluta síðasta tímabils. Rúnar skrifar undir samning sem gildir út komandi tímabil.

Hann er 37 ára gamall og á að styðja við hinn efnilega Ásgeir Orra Magnússon sem lék sína fyrstu keppnisleiki á síðasta tímabili.
Rúnar Gissurar: Tók sjö ár af Counter Strike og var fullur allar helgar
TENGT EFNI

Rúnar Gissurar: Tók sjö ár af Counter Strike og var fullur allar helgar

Rúnar þekkir vel til hjá Keflavík en hann var þar líka tímabilið 2022 og fyrri hlutann á síðasta tímabili.

Á ferlinum hefur Rúnar spilað með Njarðvík, Reyni Sandgerði, Víði, Þrótti Vogum og Keflavík.

Komnir
Kári Sigfússon frá Þrótti Vogum
Mamadou Diaw frá Noregi
Rúnar Gissurarson frá Þrótti Vogum
Daníel Gylfason frá Árbæ (var á láni)
Jordan Smylie frá Haukum (var á láni)

Farnir
Gunnlaugur Fannar Guðmundsson til Fylkis
Mathias Rosenörn í Stjörnuna
Magnús Þór Magnússon hættur
Sindri Þór Guðmundsson
Viktor Andri Hafþórsson í Þrótt R.
Ísak Daði Ívarsson í Víking R. (var á láni)
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.