Fotbolti.net
31.01.24 - 14:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Aron Bjarki tekur slaginn áfram (Staðfest)

Aron Bjarki tekur slaginn áfram (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir

Lengjudeildin
Aron Bjarki Jósepsson verður með Gróttu í sumar en þetta staðfesti hann í samtali við Fótbolta.net í dag. Aron, sem er 34 ára, var óvenjulega iðinn við kolann í markaskorun á síðasta tímabili en varnarmaðurinn skoraði fjögur mörk í 21 leik með Gróttu í Lengjudeildinni. Það gerði hann að þriðja markahæsta leikmanni liðsins.

„Það var smá spurning á tímabili, spáði í þessu eftir síðasta tímabil, maður veit aldrei hvað maður endist í þessu. En það er allt klárt, ég hef verið að æfa síðan í desember," segir Aron Bjarki.
Aron Bjarki vill halda áfram - „Þarf að ræða þetta með fjölskyldunni"
TENGT EFNI

Aron Bjarki vill halda áfram - „Þarf að ræða þetta með fjölskyldunni"

„Það er gaman í fótbolta, heilsan er góð og þá er engin ástæða til að hætta," bætir Aron við.

Hann er uppalinn í Völsungi, fór svo í KR og var þar í ellefu tímabil. Hann lék með ÍA sumarið 2022 og skipti svo í Gróttu fyrir síðasta tímabil. Hjá KR varð Aron þrisvar sinnum Íslandsmeistari og þrisvar sinnum bikarmeistari.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.