Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25164 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR29.09.2023, 17:33

Rúnar Kristins fær ekki nýjan samning og hættir hjá KR (Staðfest)

KR hefur tilkynnt að Rúnar Kristinsson, þjálfari meistaraflokks karla, muni láta af störfum sem þjálfari liðsins að tímabilinu lokun. Samningur Rúnars við KR rennur út um mánaðamót og var ákvörðun knattspyrnudeildar að framlengja ekki samninginn við Rúnar. KR er í 6. sæti Bestu deildarinnar þegar tvær umferðir eru eftir og vonir um sæti í Evrópukeppni á næsta ári eru úr sögunni.

FRÉTTIR29.09.2023, 14:05

Dean Martin kynntur sem aðstoðarþjálfari ÍA (Staðfest)

Dean Martin hefur verið ráðinn sem aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla hjá ÍA með áherslu á styrktarþjálfun og þróun ungra leikmanna. Þetta hefur verið staðfest en Fótbolti.net greindi frá þessu í síðustu viku. Hann mun aðstoða Jón Þór Hauksson sem stýrði ÍA til sigurs í Lengjudeildinni á þessu tímabili. Dean Martin hefur verið þjálfari Selfyssinga síðan 2018 en lét af störfum nýlega, eftir að liðið féll úr Lengjudeildinni. Dean hefur mikla reynslu bæði sem þjálfari og leikmaður. Dean hefur spilað 169 leiki fyrir ÍA og skorað 20 mörk en einnig á hann fjölda leikja með öðrum liðum innanlands og erlendis. Dean er með UEFA Pro og er með BSc gráðu í Íþróttafræði frá Háskólanum í Reykjavík. Hann hefur komið að þjálfun hjá KA, Breiðabliki U19, ÍA, ÍBV og HK og Selfossi þar sem hann var síðast. Dean hefur einnig komið að þjálfun yngri liða landsliðsins. „Við erum gríðarlega ánægð með að hafa fengið jafn reynslumikinn þjálfara inn í þjálfarateymið okkar," segir í tilkynningu ÍA.

FRÉTTIR28.09.2023, 17:05

Dean Martin lætur af störfum hjá Selfossi (Staðfest)

Knattspyrnudeild Selfoss og Dean Martin hafa komist að samkomulagi um að Dean láti af störfum sem þjálfari meistaraflokks karla eftir um það bil fimm ár í starfi. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Selfyssingum.

FRÉTTIR28.09.2023, 11:30

Gattuso nýr stjóri Marseille (Staðfest) - „Félag þekkt fyrir ástríðu“

Harðjaxlinn Gennaro Gattuso hefur verið ráðinn nýr stjóri franska félagsins Marseille, eftir að Marcelino sagði upp. „Ég er spenntur fyrir því að starfa með nýju liði og takast á við þær áskoranir sem bíða okkar. Þetta er félag og leikvangur sem eru þekkt um alla Evrópu fyrir ástríðu og ákefð," segir Gattuso.

FRÉTTIR28.09.2023, 09:00

Pétur stýrir Val til 2026 (Staðfest)

Pétur Pétursson hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við Val og mun því halda áfram þjálfun meistaraflokks kvenna hjá félaginu. Orðrómur var á kreiki um að Pétur myndi yfirgefa félagið eftir tímabilið en hann hefur ná kveðið niður þann orðróm með því að skrifa undir nýjan samning.

FRÉTTIR27.09.2023, 11:50

Bókin Ungi stuðningsmaðurinn komin út (staðfest)

Barnabókin Ungi stuðningsmaðurinn er komin út. Bókin fjallar um ungan strák sem er í hjólastól og hefur mikinn áhuga á fótbolta. Hann dreymir um að hjálpa liði að vinna bikar og með hæfileikum sínum gæti sá draumur ræst einn daginn. Bókin er ætluð 2 - 7 ára börnum.

Bókaútgefandi: Gudda Creative

Höfundur: Jón Fannar Árnason

Myndskreyting: Sigmar Boði Hallmundsson

Sölustaðir: Forlagið Reykjavík og Penninn Eymundsson

FRÉTTIR25.09.2023, 09:33

Láki hættur sem þjálfari Þórs (Staðfest)

Það er orðið ljóst að Þorlákur Árnason mun ekki þjálfa lið Þórs á Akureyri áfram en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins. Þorlákur hefur þjálfað liðið frá haustinu 2021 og undir hans stjórn hafnaði liðið í 7. sæti Lengjudeildarinnar bæði tímabilin.

FRÉTTIR25.09.2023, 08:00

Mislintat farinn frá Ajax eftir ofbeldi gærdagsins (Staðfest)

Sven Mislintat var ráðinn inn til Ajax í sumar til að hjálpa til í leikmannamálum félagsins en hefur strax hrökklast úr starfi sem yfirmaður fótboltamála. Þetta staðfesti Ajax með yfirlýsingu í gærkvöldi.

FRÉTTIR24.09.2023, 12:39

Marc McAusland yfirgefur Njarðvík (Staðfest)

Skoski varnarmaðurinn Marc McAusland mun yfirgefa Njarðvík þegar þegar samningur hans rennur út í næsta mánuði, en þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

FRÉTTIR23.09.2023, 14:30

Arnar aðstoðarþjálfari Njarðvíkur næstu árin (Staðfest)

Gunnar Heiðar Þorvaldsson þjálfari Njarðvíkur skrifaði undir nýjan tveggja ára samning við félagið á dögunum. Njarðvík staðfesti í dag að Arnar Smárason muni starfa áfram sem aðstoðarþjálfari liðsins næstu tvö árin.

FRÉTTIR22.09.2023, 18:40

Montella tekinn við Tyrklandi (Staðfest)

Tyrkneska knattspyrnusambandið hefur staðfest samkomulag við ítalska þjálfarann Vincenzo Montella um að taka við stjórn á landsliðinu næstu þrjú árin.

FRÉTTIR22.09.2023, 09:57

Nagelsmann stýrir Þýskalandi á EM (Staðfest)

Þýska fótboltasambandið hefur staðfest ráðningu á Julian Nagelsmann og mun hann stýra Þýskalandi á EM á næsta ári, þar sem Þjóðverjar eru gestgjafar. Nagelsmann, sem var rekinn frá Bayern München í mars, skrifaði undir samning sem gildir framyfir Evrópumótið.

FRÉTTIR22.09.2023, 09:02

Ödegaard skrifaði undir nýjan fimm ára samning (Staðfest)

Martin Ödegaard fyrirliði Arsenal hefur skrifað undir nýjan fimm ára samning við félagið. Norski miðjumaðurinn, 24 ára, hefur skorað 27 mörk og átt 15 stoðsendingar í 112 leikjum fyrir félagið. Ödegaard kom fyrst til Arsenal á láni en gekk alfarið í raðir félagsins frá Real Madrid í ágúst 2021. Hann lék í 37 af 38 deildarleikjum á síðasta tímabili, þegar Arsenal endaði í öðru sæti.

FRÉTTIR21.09.2023, 16:30

Síðasti leikur Kodro var gegn Íslandi (Staðfest)

Bosníska fótboltasambandið hefur gefið út tilkynningu þess efnis að búið sé að reka Meho Kodro úr starfi landsliðsþjálfara. Hans síðasti leikur var 1-0 tap gegn Íslandi á Laugardalsvelli þar sem Alfreð Finnbogason gerði sigurmarkið í uppbótartíma. Hann hafði verið 30 daga í starfinu þegar kom að leiknum gegn Íslandi.

FRÉTTIR20.09.2023, 13:47

Svava Rós til Benfica (Staðfest)

Landsliðskonan Svava Rós Guðmundsdóttir er gengin í raðir portúgalska félagsins Benfica frá Gotham FC í Bandaríkjunum. Portúgalska félagið var að staðfesta þessi tíðindi.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.