Fotbolti.net
25.09.23 - 09:33
Elvar Geir Magnússon

Láki hættur sem þjálfari Þórs (Staðfest)

Láki hættur sem þjálfari Þórs (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
Það er orðið ljóst að Þorlákur Árnason mun ekki þjálfa lið Þórs á Akureyri áfram en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins.

Þorlákur hefur þjálfað liðið frá haustinu 2021 og undir hans stjórn hafnaði liðið í 7. sæti Lengjudeildarinnar bæði tímabilin.
„Við í stjórn knattspyrnudeildar Þórs viljum fyrst og fremst þakka Láka kærlega fyrir sitt framlag til félagsins síðastliðin tvö ár. Ég gladdist verulega yfir ráðningu hans á sínum tíma þar sem hann hafði víða þekkingu til að miðla til félagsins okkar ásamt því að vera reynslumikill leiðtogi,“ segir Sveinn Elías Jónsson, formaður knattspyrnudeildar Þórs á heimasíðu félagsins.

„Á þessum tveimur árum hefur mörgum ungum leikmönnum verið gefið tækifæri og þeir náð að þróast í að verða lykilmenn í liðinu. Það eru spennandi tímar framundan í Þorpinu og áhugavert verkefni sem bíður eftirmanns Láka að koma okkar liði í efstu deild," segir Sveinn Elías ennfremur.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.