Arsenal leggur fram tilboð - Schick til Englands - Emi á útleið og fer Inzaghi til Sádi?
   fim 28. september 2023 21:11
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Besta deildin: Stjarnan í lykilstöðu í baráttunni um Evrópusæti - Keflavík fallið (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stjarnan fór langt með að henda KR úr leik í baráttunni um síðasta Evrópusætið þegar liðin mættust í Garðabænum í kvöld.


Emil Atlason skoraði bæði mörk Stjörnunnar í 2-0 sigri en hann er kominn með 17 mörk í sumar. Hann þarf því aðeins að skora tvö mörk í viðbót til að jafna markametið.

Íslandsmeistarar Víkings unnu FH sem þýðir að Stjarnan er með þriggja stiga forystu í baráttunni um fjórða Evrópusætið og er með mun betri markatölu.

Stjarnan getur enn náð 3. sætinu eftir að Breiðablik tapaði gegn Val á Hlíðarenda í kvöld þar sem Patrick Pedersen skoraði þrennu í markaveislu.

Keflavík er fallið niður í Lengjudeildina eftir 3-1 tap gegn Fram. ÍBV, Fylkir og Fram munu berjast um að fylgja Keflavík ekki niður.

Víkingur R. 2 - 1 FH
0-1 Björn Daníel Sverrisson ('31 )
1-1 Aron Elís Þrándarson ('80 )
2-1 Nikolaj Andreas Hansen ('83 )
Rautt spjald: Ástbjörn Þórðarson, FH ('55) Lestu um leikinn

Fram 3 - 1 Keflavík
1-0 Guðmundur Magnússon ('6 )
1-1 Edon Osmani ('67 )
2-1 Jannik Holmsgaard ('72 )
3-1 Aron Jóhannsson ('84 )
Lestu um leikinn

Stjarnan 2 - 0 KR
1-0 Emil Atlason ('5 )
2-0 Emil Atlason ('35 )
Lestu um leikinn

HK 2 - 2 Fylkir
1-0 Atli Arnarson ('7 , víti)
1-1 Benedikt Daríus Garðarsson ('45 , víti)
2-1 Anton Søjberg ('54 )
2-2 Þórður Gunnar Hafþórsson ('72 )
Rautt spjald: Sveinn Gísli Þorkelsson, Fylkir ('6) Lestu um leikinn

Valur 4 - 2 Breiðablik
1-0 Anton Ari Einarsson ('22 , sjálfsmark)
1-1 Anton Logi Lúðvíksson ('40 )
2-1 Patrick Pedersen ('43 )
2-2 Kristófer Ingi Kristinsson ('63 )
3-2 Patrick Pedersen ('82 )
3-2 Patrick Pedersen ('84 , misnotað víti)
4-2 Patrick Pedersen ('89 )
Lestu um leikinn


Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner