FRÉTTIR19.04.2023, 15:56
Olivier Giroud hefur skrifað undir nýjan samning við AC Milan, aðeins klukkustundum eftir að liðið tryggði sér sæti í undanúrslitum Meistaradeildarinnar.
Þessi 36 ára franski sóknarmaður kom til Milan sumarið 2021, frá Chelsea. Hann spilaði stórt hlutverk þegar Milan varð Ítalíumeistari á síðasta tímabili.
FRÉTTIR19.04.2023, 15:38
Varnarmaðurinn Mikaela Nótt Pétursdóttir hefur fengið félagaskipti yfir í Keflavík. Hún mun leika með liðinu í sumar á láni frá Breiðabliki.
FRÉTTIR19.04.2023, 13:00
<p>West Ham er búið að staðfesta félagsskipti bakvarðarins kröftuga Arthur Masuaku til Besiktas í Tyrklandi.</p>
FRÉTTIR19.04.2023, 11:00
Yngvi Borgþórsson hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokks karla hjá Hamri í Hveragerði fyrir komandi leiktíð.
FRÉTTIR18.04.2023, 18:27
<p>Ægir í Þorlákshöfn er búinn að staðfesta að markvvörðurinn Ivaylo Yanachkov, kallaður Choki, mun leika með liðinu í Lengjudeildinni í sumar.</p>
FRÉTTIR18.04.2023, 17:30
Tindastóll hefur bætt við sig leikmanni fyrir átökin í Bestu deild kvenna í sumar því Sofie Dall Henriksen hefur gengið frá samningi við félagið.
FRÉTTIR18.04.2023, 13:22
Jóhannes Karl Guðjónsson verður aðstoðarþjálfari Age Hareide með íslenska landsliðið.
Þetta var kynnt á fréttamannafundi í höfuðstöðvum KSÍ rétt í þessu.
FRÉTTIR18.04.2023, 11:18
<p>Varnarmaðurinn Pontus Lindgren hefur verið lánaður frá KR til ÍA og fær félagaskipti sín í gegn á morgun. Hann er því löglegur með skagamönnum sem sækja Keflavík heim í 32 liða úrslitum Mjólkurbikars karla annað kvöld.</p>
FRÉTTIR18.04.2023, 06:00
Þróttur R. hefur gengið til sín öflugan liðsstyrk fyrir tímabilið en Ingibjörg Valgeirsdóttir er komin til félagsins frá KR.
FRÉTTIR17.04.2023, 18:58
Þróttur R. í Lengjudeildinni hefur fengið Aron Snæ Ingason á láni frá Fram.
FRÉTTIR17.04.2023, 13:30
Fótbolti.net greindi frá því fyrst allra miðla að mál Gylfa Þórs Sigurðssonar hefði verið fellt niður og hann væri laus allra mála.
Hér að neðan má sjá lista yfir 20 vinsælustu fréttir Fótbolta.net í síðustu viku, raðað eftir hversu oft þær eru lesnar.
FRÉTTIR15.04.2023, 07:00
<p>Pontus Jansson fyrirliði Brentford hefur spilað sinn síðasta leik fyrir félagið.</p>
FRÉTTIR14.04.2023, 18:38
Leikur FH og Stjörnunnar fer fram á frjálsíþróttavellinum í Kaplakrika á morgun. Þetta staðfesti Birkir Sveinsson, mótastjóri KSÍ, við Fótbolta.net í dag.
FH óskaði eftir undanþágu til að spila leikinn þar, þar sem Kaplakrikavöllur sjálfur er ekki tilbúinn fyrir leikinn. Fulltrúar KSÍ tóku í dag út aðstæður við frjálsíþróttavöllinn - Miðvöllinn - og gáfu grænt ljós á að leikurinn færi þar fram.
FRÉTTIR14.04.2023, 13:39
KSÍ hefur staðfest ráðningu á Age Hareide en hér má sjá fréttatilkynningu sem send var á fjölmiðla.
Hareide kemur til landsins í komandi viku og mun þá ræða við íslenska fjölmiðla.
FRÉTTIR14.04.2023, 10:58
Fótbolti.net var að fá yfirlýsingu frá lögreglunni í Manchester þess efnis að Gylfi Þór Sigurðsson verði ekki ákærður fyrir kynferðisbrot gegn ólögráða einstaklingi og er hann því laus allra mála.
Gylfi var handtekinn í júlí 2021, grunaður um kynferðisbrot gegn ólögráða einstaklingi. Rannsókn á málinu lauk loksins í janúar síðastliðnum.
FRÉTTIR13.04.2023, 14:30
Rudi Garcia er hættur störfum hjá Sádi-arabíska félaginu Al Nassr. Frá þessu greinir félagið á samfélagsmiðlum í dag og segir að um sameiginlega ákvörðun sé að ræða.
Hann hafði stýrt liðinu undanfarna átta mánuði. Dinko Jelicic, sem hefur þjálfað U19 ára lið félagsins, hefur verið ráðinn þjálfari í stað Garcia.
FRÉTTIR13.04.2023, 12:38
FH hefur samið við bandaríska framherjann Mackenzie George og mun hún spila með liðinu í Bestu deildinni í sumar.
FRÉTTIR13.04.2023, 12:30
Samningi James Rodriguez hjá Olympiakos í Grikklandi hefur verið rift og er hann ekki lengur leikmaður félagsins.
FRÉTTIR13.04.2023, 12:00
Oleksiy Kovtun er kominn með leikheimild með Keflavík og getur því spilað með liðinu þegar KR kemur í heimsókn til Keflavíkur á laugardag í 2. umferð Bestu deildarinnar.
FRÉTTIR13.04.2023, 06:00
Jordan Zemura, leikmaður Bournemouth á Englandi, gengur í raðir ítalska félagsins Udinese í sumar en þetta staðfesti félagið á heimasíðu sinni í gær.