Spila á frjálsíþróttavellinum (Staðfest) - 1000 miðar í boði

Svona leit grasið á Miðvellinum út á miðvikudag.

Mynd: Fótbolti.net

Leikur FH og Stjörnunnar fer fram á frjálsíþróttavellinum í Kaplakrika á morgun. Þetta staðfesti Birkir Sveinsson, mótastjóri KSÍ, við Fótbolta.net í dag.
FH óskaði eftir undanþágu til að spila leikinn þar, þar sem Kaplakrikavöllur sjálfur er ekki tilbúinn fyrir leikinn. Fulltrúar KSÍ tóku í dag út aðstæður við frjálsíþróttavöllinn - Miðvöllinn - og gáfu grænt ljós á að leikurinn færi þar fram.

Leikstaður verður áfram Kaplakrikavöllur á heimasíðu KSÍ. Áður hafa leikir farið fram á Miðvellinum en leikstaður þá var einnig skráður Kaplakrikavöllur. Leikurinn hefst klukkan 16:00 á morgun og er liður í 2. umferð Bestu deildarinnar.
FH-ingar verða með aðstöðu fyrir rúmlega 300 áhorfendur í sæti og alls geta um þúsund manns sótt viðburðinn. Það verður ekki þannig að áhorfendur geti tryggt sér sæti í stúkunni.
„Það verða þúsund miðar til sölu og Stjörnumenn munu fá 250 miða af þeim - við gerum það í samráði við Stjörnumenn. Þetta fer fram í gegnum Stubb (miðasöluappið) og við munum senda á Stjörnumenn hlekk sem þeir geta sent áfram á sína stuðningsmenn sem svo geta keypt þá miða," sagði Davíð Þór Viðarsson, yfirmaður fótboltamála hjá FH, við Fótbolta.net í dag.
„Við ætlum að sjá til þess að þetta verði gert með sóma."
Önnur umferð Bestu:
laugardagur 15. apríl
14:00 Keflavík-KR (Nettóhöllin-gervigras)
16:00 KA-ÍBV (Greifavöllurinn)
16:00 FH-Stjarnan (Kaplakrikavöllur)
sunnudagur 16. apríl
17:00 Víkingur R.-Fylkir (Víkingsvöllur)
19:15 Valur-Breiðablik (Origo völlurinn)
19:15 HK-Fram (Kórinn)