Choki áfram hjá Ægi (Staðfest)


Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson


Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Ægir í Þorlákshöfn er búinn að staðfesta að markvvörðurinn Ivaylo Yanachkov, kallaður Choki, mun leika með liðinu í Lengjudeildinni í sumar.
Ægismenn komust óvænt upp í Lengjudeildina eftir að hafa átt frábært tímabil í 2. deild í fyrra en endað að lokum í þriðja sæti.
Ægir átti ekki að fara upp um deild fyrr en kom í ljós að Kórdrengir fengu ekki þátttökurétt á Íslandsmótinu. Þá vantaði síðasta liðið í Lengjudeildina og fengu Ægismenn sætið.
Choki, fæddur 1986, var gríðarlega mikilvægur hlekkur liðsins í 2. deildinni í fyrra. Hann var einnig lykilmaður er Ægir komst upp úr 3. deild sumarið 2020 en hélt aftur heim til Búlgaríu eftir það.
Choki er gríðarlega reynslumikill og á meðal annars 16 leiki að baki í efstu deild í Búlgaríu og yfir 100 leiki í næstefstu deild. Choki kom fyrst til Íslands árið 2019 og varði mark Þróttar Vogum áður en hann skipti yfir til Þorlákshafnar.
Ægir spilar við FH í Mjólkurbikarnum á fimmtudaginn. Ægismenn gerðu frábært mót í fyrra og komust alla leið í 8-liða úrslit þar sem þeir töpuðu fyrir gífurlega sterku liði KA. FH lagði KA að velli í undanúrslitunum en tapaði úrslitaleiknum eftir framlengingu gegn Víkingi R.



