Fotbolti.net
18.04.23 - 17:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Stólarnir bæta við sig Dana sem lék áður fyrr hér á landi (Staðfest)

Tindastóli er spáð níunda sæti í deildinni.

Tindastóli er spáð níunda sæti í deildinni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
Tindastóll hefur bætt við sig leikmanni fyrir átökin í Bestu deild kvenna í sumar því Sofie Dall Henriksen hefur gengið frá samningi við félagið.
Henriksen er danskur miðjumaður sem hefur áður leikið á Íslandi. Hún lék með Aftureldingu sumarið 2021 og hjálpaði liðinu að komast upp í Bestu deildina.

Eftir það tímabil var það gefið út að skórnir væru komnir upp á hilluna en hún hefur núna rifið þá niður og ætlar að spila með Stólunum í Bestu deildinni.

Henriksen, sem er fædd árið 1998, gæti spilað með Tindastóli gegn Keflavík í fyrstu umferð Bestu deildarinnar.

Sjá einnig:
Spá Fótbolta.net fyrir Bestu kvenna: 9. sæti
Hin hliðin - Hugrún Pálsdóttir (Tindastóll)
Ætlaði að nota fótboltann til að skoða heiminn en festi svo rætur í litlum bæ á Íslandi
„Finnst við hafa mikið að sanna eftir síðasta tímabil í efstu deild"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.