Fotbolti.net
15.04.23 - 07:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Fyrirliði Brentford fer til Malmö í sumar (Staðfest)

Fyrirliði Brentford fer til Malmö í sumar (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Pontus Jansson fyrirliði Brentford hefur spilað sinn síðasta leik fyrir félagið.

Thomas Frank stjóri liðsins greindi frá því á dögunum að hann væri meiddur og myndi sennilega ekki spila meira á þessari leiktíð.

Nú hefur félagið tilkynnt að hann muni yfirgefa félagið í sumar þegar samningurinn hans rennur út og mun skrifa undir hjá Malmö.

Jansson er 32 ára gamall sænskur miðvörður en hann er einmitt uppalinn hjá Malmö. Hann hefur verið hjá Brentford undanfarin fjögur ár.

„Það er erfitt að koma að orðum um þessi síðustu fjögur ár. Ég er svo þakklátur fyrir tímann hérna og ferðalagið sem félagið hefur verið á. Þegar ég kom vorum við í miðjumoði í Championship og nú er ég að yfirgefa félagið sem endar vonandi í topp 10 í úrvalsdeildinni," sagði Jansson í samtali við heimasíðu enska félagsins.

„Þetta hefur verið magnað ferðalag persónulega, ég hef þroskast í að verða fyrirliði og leiðtogi út af þessu félagi. Stuðningsmennirnir tóku mig inn í hjörtu þeirra frá fyrsta degi og ástin hefur bara orðið meiri á milli okkar. Ég vildi spila hvern einasta leik til loka tímabilsins til að enda á góðum nótum en meiðsli koma í veg fyrir það."

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.