Fotbolti.net
13.04.23 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Gengur í raðir Udinese í sumar (Staðfest)

Jordan Zemura í leik með Bournemouth

Jordan Zemura í leik með Bournemouth

Canon

Mynd: EPA

Jordan Zemura, leikmaður Bournemouth á Englandi, gengur í raðir ítalska félagsins Udinese í sumar en þetta staðfesti félagið á heimasíðu sinni í gær.
Zemura er 23 ára gamall bakvörður en hann hefur spilað með aðalliði Bournemouth síðustu þrjú ár.

Leikmaðurinn er fæddur og uppalinn á Bretlandseyjum en valdi það að spila fyrir Simbabve. Báðir foreldrar Zemura eru þaðan og gat hann því valið að spila fyrir þjóðina.

Zemura hefur komið við sögu í 19 leikjum með Bournemouth í úrvalsdeildinni á þessu tímabili en þetta verður hans síðasta með liðinu þar sem hann er búinn að skrifa undir samkomulag við Udinese á Ítalíu.

Samningur leikmannsins við Bournemouth rennur út í sumar og vildi hann ekki framlengja. Samkomulagið við Udinese var síðan staðfest í dag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.