Fotbolti.net
18.04.23 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Ingibjörg Valgeirs í Þrótt (Staðfest)

Ingibjörg Valgeirs í Þrótt (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
Þróttur R. hefur gengið til sín öflugan liðsstyrk fyrir tímabilið en Ingibjörg Valgeirsdóttir er komin til félagsins frá KR.
Ingibjörg, sem er fædd árið 1998, hóf meistaraflokksferil sinn aðeins 14 ára gömul er hún lék með Sindra í 1. deildinni árið 2012 en síðan þá hefur hún spilað 123 leiki í deild- og bikar.

Hún spilaði síðast með KR-ingum árið 2021 í Lengjudeildinni en þá lék hún alla deildarleiki liðsins.

Ingibjörg mun nú taka slaginn með Þrótturum og vera Írisi Dögg Gunnarsdóttur til halds og trausts.

Þróttarar auglýstu eftir markverði í byrjun ársins en á síðasta tímabili var Hafdís Hafsteinsdóttir varamarkvörður. Hún var á fimmtánda aldursári og því eðlilegt að félagið hafi farið í leit að varamarkverði.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.