Samningi James Rodriguez hjá Olympiakos rift (Staðfest)

James Rodriguez.

Mynd: Getty Images

James Rodriguez.

Mynd: Getty Images
Samningi James Rodriguez hjá Olympiakos í Grikklandi hefur verið rift og er hann ekki lengur leikmaður félagsins.
Þessi 31 árs gamli Kólumbíumaður gekk í raðir Olympiakos í upphafi þessa tímabils.
Hann spilaði 23 leiki fyrir félagið en samningi hans hefur núna verið rift. Þetta var ekki samstarf sem gekk upp og er leikmaðurinn núna frjáls að finna sér annað félag.
Hann hefur verið orðaður við tyrknesku félögin Besiktas og Galatasaray.
James, sem er 31 árs gamall miðjumaður, sló í gegn á HM í Brasilíu árið 2014. Eftir það fékk hann félagaskipti til Real Madrid en síðan hefur leiðin legið niður á við. Hann lék með Al-Rayyan í Katar áður en hann fór til Grikklands.