Fotbolti.net
19.04.23 - 15:38
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Mikaela Nótt í Keflavík á láni (Staðfest)

Mikaela Nótt Pétursdóttir.

Mikaela Nótt Pétursdóttir.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir

Hertz
Varnarmaðurinn Mikaela Nótt Pétursdóttir hefur fengið félagaskipti yfir í Keflavík. Hún mun leika með liðinu í sumar á láni frá Breiðabliki.
Mikaela, sem er mjög efnilegur varnarmaður, hefur verið að æfa með Keflavík að undanförnu og lék æfingaleik með liðinu fyrir stuttu síðan.

Mikaela er á 19. aldursári en hún gekk í raðir Breiðabliks í vetur eftir að hafa leikið með Val á síðustu leiktíð.

„Ég lærði margt af stelpunum og þjálfurunum í Val. Mér fannst mjög gaman að prófa eitthvað nýtt og ég er þakklát fyrir tímann minn hjá félaginu og að hafa kynnst öllum stelpunum," sagði Mikaela í viðtali við Fótbolta.net í desember.

Hún er uppalin hjá Haukum í Hafnarfirði og steig sín fyrstu skref í meistaraflokki þar.

Mikaela var hluti af U19 landsliðinu sem tryggði sér farseðilinn í lokakeppni Evrópumótsins á dögunum. Hún kemur til með að styrkja lið Keflavíkur mikið.

Sjá einnig:
Spá Fótbolta.net fyrir Bestu kvenna: 8. sæti
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.