Giroud búinn að skrifa undir (Staðfest)

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Olivier Giroud hefur skrifað undir nýjan samning við AC Milan, aðeins klukkustundum eftir að liðið tryggði sér sæti í undanúrslitum Meistaradeildarinnar.
Þessi 36 ára franski sóknarmaður kom til Milan sumarið 2021, frá Chelsea. Hann spilaði stórt hlutverk þegar Milan varð Ítalíumeistari á síðasta tímabili.

Hann var að verða samningslaus í sumar en er nú bundinn á San Siro til júnímánaðar 2024.
Giroud skoraði markið sem tryggði Milan sigur í einvíginu gegn Napoli. Liðin gerðu 1-1 jafntefli í gær en Milan fer áfram með samtals 2-1 sigri.
Hann hefur skorað 13 mörk og átt 6 stoðsendingar í 38 mótsleikjum fyrir Milan á þessu tímabili.