Pontus Lindgren til ÍA (Staðfest)

Pontus Lindgren var með KR í Reykjanesbæ um síðustu helgi og snýr aftur þangað með ÍA á morgun.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Pontus Lindgren var með KR í Reykjanesbæ um síðustu helgi og snýr aftur þangað með ÍA á morgun.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Varnarmaðurinn Pontus Lindgren hefur verið lánaður frá KR til ÍA og fær félagaskipti sín í gegn á morgun. Hann er því löglegur með skagamönnum sem sækja Keflavík heim í 32 liða úrslitum Mjólkurbikars karla annað kvöld.
Lindgren, 23 ára á árinu, kom til KR frá IK Sylvia C-deild sænska boltans fyrir sléttu ári. Hann er uppalinn hjá stórliði Norrköpping en hafði verið hjá Sylvia í þrjú ár.
Hann spilaði 16 leiki með KR í Bestu-deildinni á síðustu leiktíð auk þriggja Mjólkurbikarleikja.
Skagamenn hafa verið í vandræðum með miðverði en Alex Davey sleit hásin í bikarleik gegn Víði á dögunum auk þess sem Hlynur Sævar Jónsson hefur glímt við veikindi.



