West Ham seldi Masuaku til Besiktas (Staðfest)


Mynd: EPA


Mynd: EPA
West Ham er búið að staðfesta félagsskipti bakvarðarins kröftuga Arthur Masuaku til Besiktas í Tyrklandi.
Besiktas fékk Masuaku að láni síðasta haust og hefur leikmaðurinn staðið sig vel sem vinstri bakvörður.
Masuaku er 29 ára gamall og lék 128 leiki á sex árum hjá West Ham, sem keypti leikmanninn frá Olympiakos í gríska boltanum.
Masuaku á 13 landsleiki að baki fyrir Kongó og 105 úrvalsdeildarleiki fyrir West Ham.
Hann er mikilvægur hlekkur í sterku liði Besiktas sem er í þriðja sæti tyrknesku deildarinnar, þrettán stigum eftir toppliði Galatasaray.
We can confirm that Arthur Masuaku has completed a permanent transfer to Turkish Süper Lig side Be?ikta? J.K.
— West Ham United (@WestHam) April 17, 2023



