Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25086 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR03.02.2026, 11:37

Matthias Præst búinn að semja við lið í Danmörku (Staðfest)

Matthias Præst, fyrrum leikmaður KR og Fylkis, hefur snúið aftur til heimalandsins og er genginn til liðs við Middlefart. Middlefart situr í botnsæti næst efstu deildar í Danmörku. Præst hefur áður leikið með liðinu en hann var á mála hjá félaginu frá 2020 til ársins 2022. Præst lék 25 leiki með KR á síðasta tímabili í Bestu deildinni, en tímabilið áður lék hann 27 leiki með fallliði Fylkis. Hann yfirgaf KR í haust þrátt fyrir að eiga tvö ár eftir af samningi. Í viðtali við Fótbolta.net í haust sagði Præst heimþrá vera ástæðuna fyrir starfslokunum.

FRÉTTIR03.02.2026, 10:02

Gustav Kjeldsen í Stjörnuna (Staðfest)

Danski miðvörðurinn Gustav Kjeldsen er genginn í raðir Stjörnunnar og gerir tveggja ára samning við félagið. Hann er mættur í Garðabæinn eftir þrjú tímabil hjá Vestra þar sem hann var lykilmaður.

FRÉTTIR02.02.2026, 23:29

Axel Disasi til West Ham (Staðfest)

West Ham tókst að krækja í franska miðvörðinn Axel Disasi á elleftu stundu félagaskiptagluggans, en félagið tilkynnti komu hans á samfélagsmiðlum seint í kvöld.

FRÉTTIR02.02.2026, 22:43

Benzema til Al Hilal (Staðfest)

Karim Benzema, fyrrum handhafi Ballon d´Or verðlaunanna, hefur fært sig um set í Sádi-Arabíu en hann er kominn til toppliðs Al Hilal frá Al Ittihad.

FRÉTTIR02.02.2026, 22:29

Armstrong og Gomes til Wolves (Staðfest)

Botnlið Wolves tókst að fá tvo leikmenn til félagsins á lokametrum félagaskiptagluggans en Adam Armstrong og Angel Gomes voru kynntir hjá félaginu í kvöld.

FRÉTTIR02.02.2026, 21:41

Emelía Óskars til FCK (Staðfest)

Emelía Óskarsdóttir hefur samið við danska félagið FCK um að leika með liðinu á láni frá HB Köge út þetta tímabil.

FRÉTTIR02.02.2026, 20:52

Saint-Maximin aftur til Frakklands (Staðfest)

Hinn öskufljóti kantmaður, Allan Saint-Maximin, er kominn aftur heim til Frakklands en hann samdi í kvöld við Lens sem er í titilbaráttunni í frönsku úrvalsdeildinni.

FRÉTTIR02.02.2026, 20:21

Luca Netz til Forest (Staðfest)

Nottingham Forest tókst að ganga frá kaupum á þýska bakverðinum Luca Netz frá Borussia Mönchengladbach í tæka tíð, en hann kemur fyrir aðeins 2 milljónir punda.

FRÉTTIR02.02.2026, 20:00

Stefán Ingi til Go Ahead Eagles (Staðfest) - Metsala

Stefán Ingi Sigurðarson er genginn í raðir hollenska félagsins Go Ahead Eagles sem kaupir hann frá norska félaginu Sandefjord. Hann var kynntur sem nýr leikmaður félagsins rétt í þessu. Stefán Ingi, sem er 25 ára framherji, skrifar undir samning sem gildir fram á sumarið 2030. Hann kom til Sandefjord frá belgíska félaginu Patro Eisden sumarið 2024. Fyrr í dag greindi norski fjölmiðillinn <i>TV2</i> frá því að kaupverðið væri 34 milljónir norskra króna sem samsvarar 430 milljónum íslenskra króna og þremur milljónum evra. Um er að ræða metsölu hjá Sandefjord en fyrra met átti Christopher Cheng sem fór til pólska félagsins Widsew Lodz í byrjun gluggans fyrir 900 þúsund evrur.

FRÉTTIR02.02.2026, 19:38

Frá Sunderland til Schalke (Staðfest)

Frakkinn Adil Aouchiche er farinn frá Sunderland og genginn í raðir Schalke í Þýskalandi. Samningurinn er út næsta tímabil.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.