Gluggadagurinn er í dag en glugganum verður lokað í ensku úrvalsdeildinni klukkan 19 - Fótbolti.net stendur vaktina
banner
   þri 03. febrúar 2026 07:00
Brynjar Ingi Erluson
Liðsfélagi Hákonar lánaður til Celtic (Staðfest)
Mynd: Celtic
Varnarmaðurinn Benjamin Arthur klárar tímabilið með Skotlandsmeisturum Celtic en hann kemur á láni frá enska úrvalsdeildarfélaginu Brentford.

Arthur er 20 ára gamall miðvörður sem hefur spilað þrjá bikarleiki með Brentford á tímabilinu.

Á síðasta ári var hann valinn besti leikmaður U21 hjá Brentford, en verið i erfiðleikum með að brjóta sér leið inn í liðið hjá enska félaginu.

Hann mun fá meiri reynslu í Skotlandi en hann mun leika á láni með Celtic út þessa leiktíð.

Martin O´Neill, stjóri Celtic, var hæst ánægður með að landa enska unglingalandsliðsmanninum fyrir gluggalok.

„Ég er ánægður með að hafa fengið Benjamin til félagsins og ég tel að hann eigi eftir að verða mikilvæg viðbót við hópinn fyrir seinni hluta tímabilsins. Hann er stórkostlegur leikmaður með marga góða kosti. Hann er hávaxinn, sterkur og hraður, og veit ég að hann mun hjálpa og bæta hópinn í þeim leikjum sem við munum spila næstu mánuði," sagði O´Neill.

Íslenski landsliðsmaðurinn Hákon Rafn Valdimarsson var í marki Brentford í öllum þremur leikjunum sem Arthur spilaði með Brentford á tímabilinu og unnust allir.
Athugasemdir
banner
banner