Danski miðvörðurinn Gustav Kjeldsen er genginn í raðir Stjörnunnar og gerir tveggja ára samning við félagið.
Hann er mættur í Garðabæinn eftir þrjú tímabil hjá Vestra þar sem hann var lykilmaður.
Hann er mættur í Garðabæinn eftir þrjú tímabil hjá Vestra þar sem hann var lykilmaður.
„Gustav er öflugur hafsent og efnilegur leikmaður sem við bindum miklar vonir við. Við bjóðum Gustav hjartanlega velkominn í Garðabæinn og treystum því að hann fái hlýjar móttökur í Stjörnutreyjunni," segir í tilkynningu Stjörnunnar.
Gustav er 26 ára örvfættur miðvörður sem hjálpaði Vestra að fara upp úr Lengjudeildinni 2023, hann meiddist illa fyrir tímabilið 2024 en náði að koma til baka og hjálpa liðinu seinni hluta móts. Hann lék svo áfram stórt hlutverk á síðasta tímabili þegar Vestri varð bikarmeistari en náði ekki að halda sæti sínu í Bestu deildinni.
Hávaxni Daninn var einnig á blaði hjá Val og félög í dönsku B-deildinni sýndu honum áhuga.
Hann er uppalinn hjá Midtjylland og Randers, á að baki yfir 70 leiki í næstefstu deild Danmerkur, en kom til Íslands eftir að hafa leikið með HB í Færeyjum tímabilið 2022.
Stjarnan er núna með þá Guðmund Kristjánsson, Sindra Þór Ingimarsson og Sigurð Gunnar Jónsson auk Gustavs til að berjast um miðvarðastöðurnar.
Athugasemdir


