Matthias Præst, fyrrum leikmaður KR og Fylkis, hefur snúið aftur til heimalandsins og er genginn til liðs við Middlefart.
Middlefart situr í botnsæti næst efstu deildar í Danmörku. Præst hefur áður leikið með liðinu en hann var á mála hjá félaginu frá 2020 til ársins 2022.
Præst lék 25 leiki með KR á síðasta tímabili í Bestu deildinni, en tímabilið áður lék hann 27 leiki með fallliði Fylkis.
Hann yfirgaf KR í haust þrátt fyrir að eiga tvö ár eftir af samningi. Í viðtali við Fótbolta.net í haust sagði Præst heimþrá vera ástæðuna fyrir starfslokunum.

Athugasemdir