Gluggadagurinn er í dag en glugganum verður lokað í ensku úrvalsdeildinni klukkan 19 - Fótbolti.net stendur vaktina
   mán 02. febrúar 2026 23:29
Brynjar Ingi Erluson
Axel Disasi til West Ham (Staðfest)
Mynd: West Ham
West Ham tókst að krækja í franska miðvörðinn Axel Disasi á elleftu stundu félagaskiptagluggans, en félagið tilkynnti komu hans á samfélagsmiðlum seint í kvöld.

Disasi er 27 ára gamall og verið á mála hjá Chelsea frá 2023 en hann kom til félagsins frá Mónakó.

Hann æfði með U23 ára liði Chelsea fyrri hluta leiktíðar eftir að hafa verð settur í frystikistuna undir stjórn Enzo Maresca. Hann mátti byrja að æfa aftur með liðinu eftir að Liam Rosenior tók við sem stjóri félagsins, en taldi það best í stöðunni að fara annað til að fá að spila.

Varnarmaðurinn var orðaður við ítalska félagið AC Milan í þessum glugga ásamt fleiri félögum, en West Ham hafði betur í baráttunni og náði að landa honum á láni út tímabilið.

Engin kaupskylda eða kaupmöguleiki er hluti af lánssamningnum og snýr hann því aftur til Chelsea í lok leiktíðar.

„Ég er ótrúlega ánægður að vera kominn hingað og fá tækifærið til að spila með West Ham. Ég talaði vð allt fólkið hér og fann það strax að félagið hafði virkilegan áhuga á að fá mig," sagði Disasi.


Athugasemdir
banner
banner