Auknar líkur á að Guardiola hætti með City - Alonso, Maresca og Fabregas á lista - Rashford vill ekki snúa aftur til Man Utd
   þri 03. febrúar 2026 10:30
Brynjar Ingi Erluson
Fyrsti Færeyingurinn mættur í Seríu A (Staðfest) - Sá dýrasti í sögunni
Mynd: Hellas Verona
Varnarmaðurinn Andrias Edmundsson skrifaði nafn sitt í sögubækurnar í gær er hann gekk í raðir Hellas Verona á Ítalíu, en hann verður fyrsti Færeyingurinn til að spila í Seríu A.

Edmundsson er 25 ára gamall og kemur til Verona frá Wisla Plock fyrir 3,5 milljónir evra.

Þar með skrifaði hann aftur nafn sitt í sögubækurnar en þetta gerir hann að dýrasta leikmanni í sögu Færeyja.

Hann skrifaði undir þriggja og hálfs árs samning við Verona eða út tímabilið 2029.

Miðvörðurinn ólst upp hjá B68 í Færeyjum en fór ungur að árum til Sunderland á Englandi þar sem hann lék með unglingaliðunum. Árið 2020 samdi hann við Aguilas á Spáni áður en hann hélt til Póllands þar sem hann spilaði með Chojniczanska og síðar Wisla Plock.

Edmundsson á 19 A-landsleiki með Færeyjum og fjölda leikja með yngri landsliðunum.




Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Athugasemdir
banner
banner