Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25188 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR02.02.2023, 12:23

Varane leggur landsliðsskóna á hilluna (Staðfest)

Raphael Varane er búinn leggja landsliðsskóna á hilluna. Franski miðilinn Le Parisien greindi frá því í morgun að Varane myndi fljótlega gefa út að landsliðsskórnir væru farnir upp í hillu og hann hefur nú gert það. Varane er 29 ára miðvörður sem er á sínu öðru tímabili með Manchester United. Hann kom til enska félagsins frá Real Madrid sumarið 2021. Hann hefur verið í franska landsliðinu í tíu ár og á að baki 93 leiki, varð heimsmeistari með liðinu árið 2018 og endaði í öðru sæti á HM í Katar á síðasta ári.

FRÉTTIR02.02.2023, 10:40

Heiðdís frá Breiðabliki til Basel (Staðfest)

Miðvörðurinn Heiðdís Lillýardóttir er farin aftur út í atvinnumennsku en hún er gengin í raðir Basel í Sviss. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Breiðabliki.

FRÉTTIR02.02.2023, 10:00

Afturelding fær Katrínu frá FH (Staðfest) - Elena tekur fram skóna

Afturelding er að þétta raðirnar fyrir komandi átök í Lengjudeildinni. Katrín Vilhjálmsdóttir er gengin í raðir félagsins og skrifar undir tveggja ára samning. Katrín er 18 ára sóknarmaður og hefur skorað tíu mörk í tuttugu leikjum fyrir FH og ÍH.

FRÉTTIR01.02.2023, 19:37

De Rossi fær Nainggolan til Spal (Staðfest)

Belgíski miðjumaðurinn Radja Nainggolan er genginn í raðir Spal frá Antwerp en þar hittir hann fyrrum liðsfélaga sinn hjá Roma, Daniele De Rossi.

FRÉTTIR01.02.2023, 17:00

Wolves búið að ganga frá kaupum á Boubacar Traore (Staðfest)

Boubacar Traore verður formlega leikmaður Wolves þann 1. júlí í sumar. Traore er á láni hjá félaginu frá franska félaginu Metz en Úlfarnir virkjuðu ákvæði í samningnum og gengu frá kaupum á leikmanninum í dag. Traore er landsliðsmaður Malí sem Wolves gat keypt þegar ákveðin skilyrði voru uppfyllt. Búið er að uppfylla þau og ganga frá kaupunum.

FRÉTTIR01.02.2023, 16:40

Óliver Steinar mættur í Val (Staðfest)

Unglingalandsliðsmaðurinn Óliver Steinar Guðmundsson er búinn að skrifa undir samning við Val. Hlíðarendafélagið var að tilkynna þetta fyrir stuttu. Það var Fótbolti.net sem greindi fyrst frá því að Óliver væri á heimleið og svo að hann væri á leið í Val.

FRÉTTIR01.02.2023, 16:15

Lúkas Logi keyptur í Val (Staðfest)

Valur hefur gengið frá kaupum á Lúkasi Loga Heimissyni frá Fjölni en þetta kemur fram í tilkynningu Hlíðarendafélagsins.

FRÉTTIR01.02.2023, 15:46

Erin McLeod í Stjörnuna (Staðfest)

Stjarnan tilkynnti í dag að Erin McLeod, fyrrum markvörður liðsins og fyrrum markvörður kanadíska landsliðsins, væri mætt aftur til félagsins. Hún er eiginkona Gunnhildar Yrsu Jónsdóttur sem tilkynnt var hjá Stjörnunni í síðustu viku. Erin lék á láni hjá Stjörnunni hluta af sumrinu 2020. Hún er 39 ára gömul og flutti til Íslands ásamt Gunnhildi í upphafi árs.

FRÉTTIR01.02.2023, 06:00

Arsenal lánar Cedric til Fulham (Staðfest)

Fulham staðfesti komu Cedric Soares frá Arsenal á láni eftir miðnætti. Hann hittir þar fyrir fyrrum stjóra sinn hjá Sporting, Marco Silva.

FRÉTTIR01.02.2023, 00:43

Enzo til Chelsea fyrir metfé (Staðfest)

Enzo Fernandez er genginn til liðs við Chelsea frá Benfica en hann skrifar undir átta og hálfs árs samning. Benfica hefur staðfest skiptin.

FRÉTTIR31.01.2023, 23:11

Shelvey kominn til Forest (Staðfest)

Eins og kom fram fyrr í kvöld var Jonjo Shelvey mættur á St. James' Park í kvöld til að kveðja stuðningsmenn Newcastle en þessi þrítugi miðjumaður er genginn til liðs við Nottingham Forest.

Hann gerir tveggja og hálfs árs samning við Forest. Hann mun klæðast treyju númer sex.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.