Fotbolti.net
01.02.23 - 18:28
Brynjar Ingi Erluson
Jói útherji

Athletic kaupir Herrera frá PSG (Staðfest)

Ander Herrera

Ander Herrera

Canon

Mynd: EPA

Athletic Bilbao hefur fest kaup á Ander Herrera frá Paris Saint-Germain en þetta staðfesta bæði félög í dag.
Herrera er 33 ára gamall miðjumaður og uppalinn í Baskalandi en hann spilaði með bæði Real Zaragoza og Athletic Bilbao áður en Manchester United keypti hann árið 2014.

Hann var í miklu uppáhaldi hjá stuðningsmönnum United og var valinn besti leikmaður liðsins tímabilið 2016-2017.

Árið 2019 gekk hann í raðir Paris Saint-Germain á frjálsri sölu en þar spilaði hann þrjú tímabil áður en hann var lánaður til Athletic fyrir þessa leiktíð með möguleika á að kaupa hann.

Athletic nýtti sér kaupréttinn í dag en þetta kemur fram í tilkynningu frá báðum félögum.

Herrera hefur spilað ellefu leiki fyrir Athletic á þessu tímabili og lagt upp eitt mark.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.