Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 01. febrúar 2023 19:37
Brynjar Ingi Erluson
De Rossi fær Nainggolan til Spal (Staðfest)
Mynd: Spal
Belgíski miðjumaðurinn Radja Nainggolan er genginn í raðir Spal frá Antwerp en þar hittir hann fyrrum liðsfélaga sinn hjá Roma, Daniele De Rossi.

Nainggolan rifti samningi sínum við Antwerp á dögunum tæpu hálfu ári eftir að hafa samið við félagið.

Miðjumaðurinn yfirgaf Inter síðasta sumar og ákvað að halda aftur heim til Belgíu en hann var ekki lengi að koma sér í klandur þar.

Í október var hann gripinn af lögreglunni fyrir að keyra próflaus og þá reykti hann rafrettu á bekk Antwerp er liðið mætti Standard Liege, en hann fékk bann fyrir það athæfi.

Nú er hann mættur aftur til Ítalíu en í dag skrifaði hann undir samning við ítalska B-deildarfélagið Spal.

Daniele De Rossi, fyrrum liðsfélagi hans hjá Roma, er þjálfari Spal sem situr í 15. sæti B-deildarinnar.
Athugasemdir
banner
banner
banner