Fotbolti.net
01.02.23 - 07:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Í samstarfi við styrktaraðila

Southampton greiðir metfé fyrir Sulemana - Onuachu mættur einnig (Staðfest)

Paul Onuachu

Paul Onuachu

Canon

Mynd: EPA

Southampton nældi í tvo leikmenn í gær en það voru þeir Kaladeen Sulemana sem kom frá Stade Rennais og Paul Onuachu frá Genk.

Sulemana gerði fjögurra og hálfs árs samning en þessi tvítugi Ganverji kostaði Southampton 22 milljónir punda sem er félagsmet. Sulemana spilar sem kanntmaður.

Onuachu er framherji en hann gerði þriggja og hálfs árs samning.

Þessi nígeríski landsliðsmaður skoraði 17 mörk í 22 leikjum fyrir Genk í belgísku deildinni sem gerði hann að markahæsta leikmanni deildarinnar.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.