Fotbolti.net
31.01.23 - 23:24
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Í samstarfi við styrktaraðila

Navas til Nottingham Forest (Staðfest)

Navas til Nottingham Forest (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Reynsluboltinn Keylor Navas er síðastur til að ganga til liðs við Nottingham Forest á þessari leiktíð.

Þessi 36 ára gamli markvörður kemur á láni út tímabilið frá PSG en hann er fenginn til að leysa Dean Henderson af hólmi sem er meiddur.

Navas gekk til liðs við Real Madrid árið 2014 en fór þaðan til PSG árið 2019 en hefur nú misst byrjunarliðssætið til Gianluigi Donnarumma.

Navas er þriðji leikmaðurinn á eftir Felipe og Jonjo Shelvey sem Forest nælir í í kvöld.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.