Fotbolti.net
01.02.23 - 00:43
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Í samstarfi við styrktaraðila

Enzo til Chelsea fyrir metfé (Staðfest)

Enzo til Chelsea fyrir metfé (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Enzo Fernandez er genginn til liðs við Chelsea frá Benfica en hann skrifar undir átta og hálfs árs samning. Benfica hefur staðfest skiptin.

Liðin höfðu verið í miklum viðræðum um hvernig ætti að borga fyrir leikmanninn en heildarverðið er 106.8 milljónir punda sem er met hjá ensku félagi. Samkvæmt heimildum Fabrizio Romano fékk Chelsea ósk sína uppfyllta.

Jack Grealish var dýrasti leikmaður í sögu Englands þegar Manchester City keypti hann frá Aston Villa fyrir 100 milljónir punda.

Chelsea mun borga 40 milljónir punda strax og restina í sex greiðslum næstu árin.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.