Manchester United hefur staðfest komu Marcel Sabitzer til félagsins á láni frá Bayern Munchen út þessa leiktíð.
United fór á fullt að ná í leikmann til að koma í stað Christian Eriksen sem er meiddur og Sabitzer er nú kominn til að leysa þann danska af.
Sabitzer gekk til liðs við Bayern árið 2021 frá RB Leipzig en hann hefur leikið 54 leiki með þýsku meisturunum. Hann kom við sögu í 18 leikjum í deildinni á þessari leiktíð þar af sjö í byrjunarliðinu.
„Marcel er leikmaður sem við höfum fylgst lengi með. Þetta gerðist hratt og við vissum að hann væri með hæfileikana og karakterinn til að gera góða hluti. Hann bætir gæðin í hópnum og reynslu í klefann," sagði John Murtough yfirmaður fótboltamála hjá Manchester United.
Welcome to United, Marcel Sabitzer ????#MUFC
— Manchester United (@ManUtd) February 1, 2023