Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25190 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR31.01.2023, 17:58

Llorente til Roma (Staðfest)

<p>Diego Llorente er genginn til liðs við Roma á láni frá Leeds út þessa leiktíð.</p><p>Roma er með forkaupsrétt á leikmanninum næsta sumar og fyrirhugað er að hann gangi alfarið í raðir félagsins.</p>

FRÉTTIR31.01.2023, 16:04

SönderjyskE fær Orra Stein á láni frá FCK (Staðfest)

SönderjyskE ætlar sér beint aftur upp úr dönsku B-deildinni eftir að hafa fallið úr Superliga á síðasta tímabili. Danska félagið hefur fengið íslenska U21 árs landsliðsmanninn Orra Stein Óskarsson á láni frá dönsku meisturunum í FCK út tímabilið.

FRÉTTIR31.01.2023, 15:44

Portsmouth fær Bernard frá Man Utd (Staðfest)

Manchester United hefur lánað miðvörðinn Di'Shon Bernard til Portsmouth út tímabilið. Bernard er 22 ára gamall og hefur verið hjá United frá árinu 2019. Hann kom það ár frá Chelsea þar sem hann er uppalinn. Hann á að baki einn Evrópuleik fyrir United, lék gegn Astana í Evrópudeildinni en varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark í 2-1 tapi.

FRÉTTIR31.01.2023, 15:30

Leicester fær Opoku (Staðfest) - Lánaður til Leuven út tímabilið

Leicester hefur fengið framherjann Nathan Opoku í sínar raðir. Hann lék síðast með liði Syracuse háskólans. Hann kemur til Leicester eftir að hafa, samkvæmt heimildum <i>Sky Sports</I>, hafnað þeim möguleika að vera fyrsti valmöguleiki í nýliðavalinu fyrir MLS-deildina fyrr á þessu ári. Opoku er 21 árs gamall og mun klára tímabilið á láni hjá belgíska félaginu OH Leuven. Þar verður hann liðsfélagi íslenska landsliðsmannsins Jóns Dags Þorsteinssonar. Leuven er systurfélag Leicester.

FRÉTTIR31.01.2023, 15:26

Orlando kaupir Dag Dan (Staðfest)

Orlando City tilkynnti í dag að félagið hefði fest kaup á íslenska landsliðsmanninum Degi Dan Þórhallssyni. Orlando kaupir hann af Breiðabliki þar sem hann átti frábært tímabil í fyrra og var einn allra besti leikmaður Íslandsmótsins. Félagið er að vinna í því að Dagur fá atvinnuleyfi og verður hann í kjölfarið hluti af hópnum sem tekur þátt í komandi tímabili í MLS-deildinni.

FRÉTTIR31.01.2023, 14:32

Terem Moffi til Nice (Staðfest)

Terem Moffi er genginn í raðir Nice frá Lorient. Moffi er 23 ára nígerískur framherji sem var orðaður við bæði Southampton og West Ham í glugganum. Moffi kemur á láni frá Lorient út tímabilið en Nice þarf svo að kaupa hann alfarið í sumar. Alls kostar hann um 25 milljónir punda.

FRÉTTIR31.01.2023, 14:15

Soonsup-Bell frá Chelsea til Tottenham (Staðfest)

Tottenham krækti í dag í leikmann, á gluggadeginum sjálfum. Sá heitir Jude Soonsup-Bell og kemur frá Chelsea. Hann mun fara í akademíuliðið hjá Spurs. Soonsup-Bell er nítján ára sóknarmaður og skrifar undir samning sem gildir fram á sumarið 2025.

FRÉTTIR31.01.2023, 13:08

Christian Köhler í dönsku B-deildina (Staðfest)

Miðjumaðurinn Christian Köhler, sem lék með ÍA á síðasta tímabili, er genginn í raðir Fremad Amager í Danmörku. Danski miðjumaðurinn kom til Íslands fyrir tímabilið 2021 og lék þá með Val. Fyrir tímabilið 2022 skipti hann svo yfir í ÍA þar sem hann lék í fyrra.

FRÉTTIR31.01.2023, 12:31

Valur fær Hönnu Kallmaier frá ÍBV (Staðfest)

Valur tilkynnti í dag að Hanna Kallmaier væri búin að skrifa undir samning við félagið út komandi tímabil í Bestu deild kvenna. Hanna er þýsk og kemur til Vals frá ÍBV þar sem hún hefur spilað þrjú síðustu tímabil.

FRÉTTIR31.01.2023, 11:40

Þór fær varafyrirliða Öster (Staðfest)

Þórsarar tilkynntu í dag að samkomulag væri í höfn um að Marc Rochester Sörensen væri genginn í raðir félagsins. Hann mun leika með liðinu á komandi tímabili í Lengjudeildinni. Marc er þrítugur miðjumaður og hefur á sínum ferli leikið 99 leiki í dönsku úrvalsdeildinni, flesta með Silkeborg.

FRÉTTIR31.01.2023, 11:35

Cancelo frá Man City til Bayern München (Staðfest)

Það er staðfest. Portúgalski bakvörðurinn Joao Cancelo hefur gengið í raðir Bayern München frá Manchester City. Hann fer til Bayern á lánssamningi en Þýskalandsmeistararnir eru með ákvæði um að geta keypt hann á 61,5 milljónir punda næsta sumar. Spiltími þessa 28 ára leikmanns hafði farið minnkandi hjá City og <a href="https://fotbolti.net/news/30-01-2023/guardiola-fekk-nog-af-cancelo-eftir-rifrildi-a-aefingasvaedinu" target="_blank">fjallað var um ósætti</a> milli hans og Pep Guardiola, stjóra City.

FRÉTTIR31.01.2023, 11:00

Sunderland kaupir Anderson frá Everton (Staðfest)

Sunderland hefur gengið frá kaupum á Joe Anderson frá Everton, kaupverðið er óuppgefið. Anderson er 21 árs miðvörður sem kemur úr U21 liði Everton þar sem hann hefur verið fyrirliði í nokkrum leikjum á tímabilinu.

FRÉTTIR31.01.2023, 10:09

Newcastle kaupir Ashby (Staðfest)

Newcastle hefur gengið frá kaupum á Harrison Ashby frá West Ham. Ashby er 21 árs hægri bakvörður sem var að verða samningslaus hjá West Ham næsta sumar. Hann hafði tjáð félaginu að hann ætlaði ekki að gera nýjan samning og samþykkti West Ham þriggja milljóna punda tilboð í leikmanninn.

FRÉTTIR31.01.2023, 09:20

Arsenal lánar Marquinhos til Norwich (Staðfest)

Hinn nítján ára gamli sóknarleikmaður Marquinhos hefur gengið í raðir Norwich í Championship-deildinni á lánssamningi frá Arsenal út tímabilið. Hann hefur spilað sex aðalliðsleiki fyrir Arsenal á þessu tímabili.

FRÉTTIR31.01.2023, 09:10

Hinn átján ára gamli Monteiro til Leeds (Staðfest)

Hinn átján ára gamli miðvörður Diogo Monteiro hefur gengið í raðir Leeds United frá Servette í Sviss. Monteiro lék sinn fyrsta deildarleik fyrir Servette þegar hann var sextán ára og varð þriðji yngsti leikmaðurinn til að spila í svissnesku úrvalsdeildinni.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.