Djed Spence bakvörður Tottenham er genginn til liðs við franska liðið Rennes á láni út tímabilið.
Þessi 22 ára gamli hægri bakvörður gekk til liðs við Tottenham frá Middlesbrough í sumar en hann vakti athygli fyrir frammistöðu sína hjá Nottingham Forest í Championship deildinni á síðustu leiktíð þegar liðið tryggði sér sæti í úrvalsdeildinni.
Hann lék 39 leiki fyrir Forest þar sem hann var á láni frá Middlesbrough á síðustu leiktíð.
Hann hefur hins vegar aðeins komið við sögu í sex leikjum á tímabilinu hjá Tottenham, þar af fjórum í úrvalsdeildinni.
Rennes er í 5. sæti frönsku deildarinnar sem veitir þátttökurétt í forkeppni Sambandsdeildarinnar. Sex stig eru upp í Meistaradeildarsæti.
Djed Spence has joined Ligue 1 side Stade Rennais for the remainder of the 2022/23 season.
— Tottenham Hotspur (@SpursOfficial) January 31, 2023
Smash it, Djed ????