Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   þri 31. janúar 2023 14:22
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Fulham riftir við Onomah (Staðfest) - Chalobah á förum og óvissa með Cedric Soares
Onomah er farinn frá Fulham.
Onomah er farinn frá Fulham.
Mynd: Getty Images
Fulham hefur tilkynnt að það hefur rift samningi sínum við Josh Onomah. Onomah er enskur miðjumaður sem hefur verið hjá Fulham síðan 2019.

Hann er 25 ára gamall og lék alls 76 leiki með Fulham. Einungis tveir þeirra voru á þessu tímabili. Hann er nú orðaður við Preston og Rangers.

Fleiri tíðindi eru af Fulham. Þeir eru að losa Nathaniel Chalobah til WBA í Championship deildinni. Chalobah er 28 ára miðjumaður sem getur einnig spilað í vörninni. Hann hefur einungis komið við sögu í sex leikjum á tímabilinu.

Loks er Fulham áfram að reyna fá hægri bakvörðinn Cedric Soares frá Arsenal en ekki er víst hvort að þau skipti ná í gegn.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner