Fotbolti.net
31.01.23 - 17:58
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Í samstarfi við styrktaraðila

Llorente til Roma (Staðfest)

Llorente til Roma (Staðfest)
Canon

Mynd: Roma

Diego Llorente er genginn til liðs við Roma á láni frá Leeds út þessa leiktíð.

Roma er með forkaupsrétt á leikmanninum næsta sumar og fyrirhugað er að hann gangi alfarið í raðir félagsins.

Það var ljóst að Roma þurfti að losa sig við einn varnarmann til að geta skráð Llorente í hópinn en Matías Vina gekk til liðs við Bournemouth frá Roma fyrr í dag.

Llorente er 29 ára gamall miðvörður en hann gekk til liðs við Leeds sumarið 2020. Hann á að baki 54 leiki fyrir Leeds og hefur skorað fjögur mörk. Hann hefur ekki verið í stóru hlutverki að undanförnu.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.