Brighton lánar Khadra til Birmingham (Staðfest)
Reda Khadra, miðjumaður Brighton, mun spila með Birmingham City út þessa leiktíð.
Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25199 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.
Reda Khadra, miðjumaður Brighton, mun spila með Birmingham City út þessa leiktíð.
Enska B-deildarfélagið Coventry City landaði í dag vinstri bakverðinum Josh Wilson-Esbrand á láni frá Manchester City.
HK hefur samið við hina 24 ára gömlu Brookelynn Entz um að leika með liðinu á næsta keppnistímabili. Vart þarf að fjölyrða um hversu gífurlega mikill liðsstyrkur þetta er fyrir HK en miðjumaðurinn kemur til liðsins frá Íslands- og bikarmeisturum Vals. Hjá Val náði Brookelynn ekki að festa sig almennilega í sessi í byrjunarliðinu en tók þó þátt í 14 leikjum á liðnu tímabili og skoraði eitt mark.
FH hefur staðfest eins árs samning við sóknarmanninn Kjartan Henry Finnbogason sem var félagslaus eftir að hafa yfirgefið KR í fyrra. Kjartan er 36 ára og uppalinn hjá KR. Það var mikið fjaðrafok þegar hann yfirgaf Vesturbæinn. Kjartan fer í treyju númer 9 hjá FH, en Matthías Vilhjálmsson bar það númer áður en hann fór í Víking. Síðasta tímabil var erfitt fyrir FH sem var í fallbaráttu og endaði í 10. sæti Bestu deildarinnar. Liðið komst í bikarúrslit en tapaði þar fyrir Víkingi.

Ruslan Malinovskyi er genginn til liðs við Marseille í Frakklandi en hann kemur frá ítalska félaginu Atalanta.

Telma Sif Búadóttir hefur skrifað undir tveggja ára samning við Gróttu en hún lék með liðinu á láni frá Víkingi í sumar.

Danski framherjinn Mikkel Dahl er genginn til liðs við HB í Færeyjum en hann lék með Leikni síðasta sumar.

Keflavík hefur nælt í sinn fyrsta leikmann fyrir átökin í Bestu deildinni næsta sumar. Gunnlaugur Fannar Guðmundsson hefur gert tveggja ára samning við félagið.

Gareth Bale, fyrirliði velska landsliðsins, hefur tilkynnt að fótboltaferli hans sé lokið. Bale er 33 ára og hefur ákveðið að láta gott heita. Bale er fyrrum leikmaður Tottenham og Real Madrid en hann lék síðast fyrir LAFC og varð bandarískur meistari með félaginu. „Eftir vandlega og ítarlega umhugsun tilkynni ég hér með að ég hef ákveðið að hætta fótboltaiðkun. Ég tel mig ákaflega heppinn að hafa upplifað draum minn að spila íþróttina sem ég elska. Hún hefur gefið mér nokkrar af bestu stundum lífs míns," segir Bale í yfirlýsingu sinni.
Varnarmaðurinn Jón Ingason hefur ákveðið að framlengja samning sinn við ÍBV og verður hann því áfram í Vestmannaeyjum.
Spánverjinn Roberto Martínez hefur verið staðfestur sem nýr landsliðsþjálfari Portúgals. Martínez, sem gerir þriggja og hálfs árs samning, hætti sem landsliðsþjálfari Belgíu eftir að liðinu mistókst að komast upp úr riðli sínum á HM í Katar. Þessi fyrrum stjóri Everton og Wigan var ráðinn þjálfari Belga 2016. Undir hans stjórn endaði Belgía í þriðja sæti á HM 2018 en liðið var í öðru sæti á FIFA listanum þegar það kom inn í HM í Katar. Fernando Santos lét af störfum eftir að portúgalska liðið tapaði gegn Marokkó í 8-liða úrslitum HM. Martínez fær að glíma við það verkefni að takast á við vandamálin sem fylgja Cristiano Ronaldo en í viðtali á síðasta ári talaði Martínez um það að árin væru farin að hafa áhrif á Ronaldo og frammistaða leikmannsins færi dalandi.
Hreinn Ingi Örnólfsson hefur skrifað undir tveggja ára samning um að leika með Þrótti Vogum 2023 og 2024. Hreinn verður spilandi aðstoðarþjálfari og mun aðstoða Brynjar Þór Gestsson við þjálfun liðsins.

Margrét Árnadóttir er gengin í raðir Parma á Ítalíu frá Þór/KA en þetta staðfesti Þór/KA á heimasíðu sinni rétt í þessu.

Bandaríski markvörðurinn Elaina LaMacchia hefur gengið til liðs við Fram en liðið mun spila í Lengjudeild kvenna næsta sumar.

Hollandsmeistarar Ajax eru búnir að festa kaup á varamarkverði argentínska landsliðsins, Geronimo Rulli, sem varð heimsmeistari í Katar í desember.

Napoli er búið að krækja í pólska bakvörðinn Bartosz Bereszynski sem er fenginn til félagsins sem varamaður fyrir Giovanni Di Lorenzo sem hefur varla fengið frí frá komu sinni til Napoli fyrir þremur og hálfu ári síðan.

Chelsea staðfesti komu Fofana fyrr í dag og hún hefur félagið staðfest önnur kaup.

Chelsea hefur staðfest að David Datro Fofana sé genginn til liðs við félagið frá Molde í Noregi.

Dider Deschamps kom franska landsliðinu í úrslit á HM í Katar þar sem liðið tapaði að lokum gegn Argentínu.

Hinn tvítugi Romeo Beckham, sonur David Beckham er genginn til liðs við Brentford á láni frá varaliði Inter Miami í Bandaríkjunum en hann mun æfa og spila með varaliði enska félagsins.