þri 10. janúar 2023 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Malinovskyi kominn til Marseille (Staðfest)
Mynd: EPA

Ruslan Malinovskyi er genginn til liðs við Marseille í Frakklandi en hann kemur frá ítalska félaginu Atalanta.


Þessi 29 ára gamli sóknartengiliður rennur út af samningi hjá Atalanta næsta sumar en hann kemur til Marseille á láni en liðið verður síðan að kaupa hann næsta sumar.

Kaupverðið er 10 milljónir evra auk 3 milljónir evra árangurstengdar greiðslur.

Marseille hefur verið iðið við að styrkja leikmannahópinn sinn undanfarin misseri. Matteo Guendouzi, Pau Lopez, Jordan Veretout og Jonathan Clauss eru meðal nýrra leikmanna félagsins ásamt Eric Bailly, Alexis Sanchez og fleirum.

Liðið er í þriðja sæti frönsku deildarinnar með 36 stig eftir 17 umferðir, átta stigum eftir stórveldi PSG sem trónir á toppinum.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner