Fyrrum aðstoðarmaður Van Gaal tekur við Hollandi (Staðfest)
Hollenska fótboltasambandið hefur loksins ráðið nýjan þjálfara fyrir kvennalandslið sitt.
Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25208 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.
Hollenska fótboltasambandið hefur loksins ráðið nýjan þjálfara fyrir kvennalandslið sitt.
Franska félagið Paris Saint-Germain hefur keypt Berglindi Björgu Þorvaldsdóttur frá norska félaginu Brann. Brann staðfestir þetta á heimasíðu sinni og segir að Berglind hafi þegar gengist undir læknisskoðun og skrifað undir samning.
Ítalski vinstri bakvörðurinn Emerson Palmieri er genginn í raðir West Ham frá Chelsea en þetta kemur fram í tilkynningu frá Hömrunum í kvöld.
Landsliðskonan Alexandra Jóhannsdóttir er búin að fá félagaskipti yfir frá Eintracht Frankfurt til Fiorentina frá Ítalíu. Fótbolti.net sagði fyrst frá þessum skiptum síðasta föstudag.
Brasilíski miðjumaðurinn Casemiro er formlega orðinn leikmaður Manchester United. Hann var formlega kynntur til leiks hjá félaginu fyrir leikinn gegn Liverpool sem var að hefjast. Hann gekk út á völl og heilsaði stuðningsmönnum á Old Trafford.
Bertrand Traore, sóknarleikmaður Aston Villa, hefur gengið í raðir tyrkneska félagsins Istanbul Basaksehir á lánssamningi út tímabilið. Þessi 26 ára gamli landsliðsmaður Búrkína Fasó hefur ekki spilað fyrir Villa í þeim þremur leikjum sem búnir eru á tímabilinu. Istanbul Basaksehir hafnaði í fjórða sæti tyrknesku deildarinnar á síðasta tímabili en liðið sló Breiðablik úr leik í forkeppni Sambandsdeildarinnar nýlega. Traore hefur skorað sjö mörk í 45 leikjum fyrir Villa en hann gekk í raðir félagsins frá Lyon 2020.
Emil Pálsson hefur lagt fótboltaskóna á hilluna en hann er 29 ára gamall. Hann hefur ákveðið að ljúka ferli sínum eftir að hafa farið tvívegis í hjartastopp á sex mánaða kafla. „Fótboltinn hefur alltaf verið mín stærsta ástríða í lífinu og ég er mjög stoltur af ferlinum sem ég skil eftir. Að hafa spilað sem atvinnumaður eru forréttindi og ég naut hverrar mínútu. Það er erfitt að yfirgefa íþróttina á þessu stigi ferilsins en heilsan á alltaf að vera í forgangi," skrifar Emil á Instagram. Emil fór í hjartastopp þegar hann var að spila með Sogndal í Noregi á fyrsta degi nóvembermánaðar á síðasta ári og var endurlífgaður á vellinum. Hann setti stefnuna á að halda fótboltaferlinum áfram en fór svo aftur í hjartastopp á æfingu í maí. Emil fæddist á Ísafirði og lék með BÍ/Bolungarvík áður en hann gekk í raðir FH þar sem hann varð þrívegis Íslandsmeistari og einu sinni bikarmeistari. Auk Sogndal lék hann með Sandefjord og Sarpsborg í Noregi. Hann á einn A-landsleik, vináttulandsleik gegn Sameinuðu arabísku furstadæmunum 2016 en hér að neðan má sjá myndir frá ferli hans.

Evrópudeildarmeistarar Eintracht Frankfurt hafa byrjað nýtt tímabil illa í þýsku deildinni og eru að styrkja hópinn sinn.

Middlesbrough er búið að tryggja sér brasilíska sóknarmanninn Rordigo Muniz á lánssamningi frá Fulham.

Spiluð var heil umferð í 2. deild karla í dag en þá fór 18 umferðin fram. Leikur Þróttar og Reynis Sandgerði var í beinni textalýsingu hér á Fotbolta.net Lestu nánar um þann leik hérna.

Napoli hefur gengið frá eins árs lánssamningi við ítalska sóknarmanninn Giacomo Raspadori en hann kemur til félagsins frá Sassuolo. Napoli mun gera skiptin varanleg fyrir 30 milljónir evra á næsta ári.
Sóknarmaðurinn reynslumikli Jamie Vardy hefur skrifað undir nýjan samning við Leicester sem gildir til sumarsins 2024. Vardy var á dögunum orðaður við Manchester United en ljóst er að hann er ekki á förum frá Leicester. Vardy er 35 ára en í maí fagnaði hann því að hafa verið hjá Leicester í áratug. Hann er þriðji markahæsti leikmaður í sögu félagsins, með 164 mörk. Með Leicester hefur hann unnið ensku úrvalsdeildina, FA bikarinn og Samfélagsskjöldinn og segist vera í skýjunum með nýjan samning.

Manchester City er búið að lána miðvörðinn efnilega Issa Kaboré til Marseille út tímabilið. Lánssamningnum fylgir 20 milljón evra söluákvæði, sem nemur 17 milljónum punda.

Napoli er búið að staðfesta komu Giovanni Simeone á lánssamningi út tímabilið. Argentínski sóknarmaðurinn skoraði 17 mörk í 35 deildarleikjum með Verona og vildi róa á önnur mið.

Napoli og Tottenham eru búin að staðfesta félagsskipti Tanguy Ndombele yfir í ítalska boltann á lánssamningi út tímabilið.

Chelsea hefur gengið frá kaupum á Cesare Casadei frá Inter og gerir þessi ungi leikmaður sex ára samning. Á heimasíðu enska félagsins er honum lýst sem einum efnilegasta leikmanni Ítalíu en kaupverðið er sagt í kringum 16 milljónir punda.
Franski miðjumaðurinn Tanguy Ndombele er genginn í raðir ítalska félagsins Napoli á eins árs lánssamningi frá Tottenham. Napoli fær svo í kjölfarið tækifæri til þess að kaupa leikmanninn .
Nottingham Forest hefur gert Morgan Gibbs-White að dýrasta leikmanni í sögu félagsins. Hann er keyptur frá Wolves á 25 milljónir punda en upphæðin getur hækkað um 17 milljónir punda eftir ákvæðum. Mörgum þykir ótrúlegt að nýliðar Forest séu tilbúnir að borga svona háa upphæð fyrir leikmanninn en í Skírisskógi hafa menn greinilega tröllatrú á honum. Það sést vel á því að hann fær treyju númer 10. Gibbs-White er 22 ára miðjumaður og er sextándi leikmaðurinn sem Forest kaupir í sumarglugganum. Gibbs-White hefur byrjað báða leiki Wolves á tímabilinu en hann fékk mikið lof fyrir frammistöðu sína með Sheffield United á síðasta tímabili en þar lék hann á lánssamningi.
Arsenal hefur fest kaup á sóknarmanninum Linu Hurtig og kemur hún til enska félagsins frá ítölsku meisturunum í Juventus. Arsenal greiðir um 85 þúsund pund fyrir Hurtig. Hurtig er 26 ára gömul og hefur verið hjá Juventus síðan 2020. Hún er sænskur landsliðskona og á að baki 58 leiki fyrir landsliðið þar sem hún hefur skorað nítján mörk.
Manchester City hefur lánað Liam Delap til Stoke City út tímabilið. Stoke er í Championship og mun hann öðlast leikreynslu þar. Liam er nítján ára sóknarmaður sem spilaði sína fyrstu keppnisleiki í febrúar þegar hann kom við sögu í úrvalsdeildinni og Meistaradeildinni.