Emil leggur skóna á hilluna eftir tvö hjartastopp (Staðfest)

Emil Pálsson hefur lagt skóna á hilluna.

Mynd: Fótbolti.net - Tom

Emil Pálsson hefur lagt skóna á hilluna.

Mynd: Fótbolti.net - Tom
„Fótboltinn hefur alltaf verið mín stærsta ástríða í lífinu og ég er mjög stoltur af ferlinum sem ég skil eftir. Að hafa spilað sem atvinnumaður eru forréttindi og ég naut hverrar mínútu. Það er erfitt að yfirgefa íþróttina á þessu stigi ferilsins en heilsan á alltaf að vera í forgangi," skrifar Emil á Instagram.
Emil fór í hjartastopp þegar hann var að spila með Sogndal í Noregi á fyrsta degi nóvembermánaðar á síðasta ári og var endurlífgaður á vellinum. Hann setti stefnuna á að halda fótboltaferlinum áfram en fór svo aftur í hjartastopp á æfingu í maí.
Emil fæddist á Ísafirði og lék með BÍ/Bolungarvík áður en hann gekk í raðir FH þar sem hann varð þrívegis Íslandsmeistari og einu sinni bikarmeistari. Auk Sogndal lék hann með Sandefjord og Sarpsborg í Noregi.
Hann á einn A-landsleik, vináttulandsleik gegn Sameinuðu arabísku furstadæmunum 2016 en hér að neðan má sjá myndir frá ferli hans.


Mynd: Ívar Atli Sigurjónsson


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - J.L.


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - J.L.


Mynd: Fótbolti.net - J.L.


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski


Mynd: Fótbolti.net - J.L.


Mynd: Sandefjord


