Fotbolti.net
22.08.22 - 07:20
Ívan Guðjón Baldursson

Ebimbe og Pellegrini til Frankfurt (Staðfest)

Ebimbe og Pellegrini til Frankfurt (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Evrópudeildarmeistarar Eintracht Frankfurt hafa byrjað nýtt tímabil illa í þýsku deildinni og eru að styrkja hópinn sinn.

Þeir voru að bæta Eric Junior Ebimbe við hópinn hjá sér á eins árs lánssamningi frá PSG með 6,5 milljón evru kaupmöguleika.

Ebimbe er franskur miðjumaður sem kom við sögu í fjórtán leikjum með PSG á síðustu leiktíð. Hann er 21 árs gamall og á fjóra leiki að baki fyrir yngri landslið Frakka.

Ebimbe átti aðeins eitt ár eftir af samningi sínum við PSG í sumar en er búinn að framlengja þann samning um eitt ár. Það er gert svo Frakklandsmeistararnir missi hann ekki á frjálsri sölu næsta sumar.

Fabrizio Romano greinir frá því að kaupmöguleikinn í lánssamningi Ebimbe breytist í kaupskyldu ef Frankfurt heldur sér í efstu deild.

Luca Pellegrini er þá einnig kominn á lánssamningi út tímabilið. Hann kemur frá Juventus til að fylla í skarðið sem Filip Kostic skilur eftir í leikmannahópinum.

Pellegrini er vinstri bakvörður fæddur 1999 með 69 leiki að baki í Serie A, þar af 18 á síðustu leiktíð með Juventus.

Það fylgir honum engin kaupskylda og er hann samningsbundinn Juve næstu þrjú árin.

Pellegrini var mikilvægur hlekkur upp yngri landslið Ítalíu en hefur aðeins spilað einn A-landsleik.

Frankfurt hefur þegar krækt í Lucas Alario, Mario Götze, etc etc auk tveggja Króata, Kristijan Jakic og Hrvoje Smolcic. Jakic er miðjumaður sem kemur frá Dinamo Zagreb eftir góðan lánssamning hjá Frankfurt á síðustu leiktíð á meðan Smolcic er varnarmaður úr röðum Rijeka. Hann er fyrirliði félagsins, nýorðinn 22 ára, auk þess að eiga leiki fyrir U19, U20 og U21 landsliðin.

Frankfurt borgaði um 6 milljónir evra fyrir þessa tvo króatísku leikmenn 


Ebimbe og Pellegrini til Frankfurt (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Ebimbe og Pellegrini til Frankfurt (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.