Fotbolti.net
19.08.22 - 09:36
Elvar Geir Magnússon

Gibbs-White orðinn sá dýrasti í sögu Forest (Staðfest)

Morgan Gibbs-White.

Morgan Gibbs-White.

Canon

Mynd: Nottingham Forest

Nottingham Forest hefur gert Morgan Gibbs-White að dýrasta leikmanni í sögu félagsins. Hann er keyptur frá Wolves á 25 milljónir punda en upphæðin getur hækkað um 17 milljónir punda eftir ákvæðum.

Mörgum þykir ótrúlegt að nýliðar Forest séu tilbúnir að borga svona háa upphæð fyrir leikmanninn en í Skírisskógi hafa menn greinilega tröllatrú á honum. Það sést vel á því að hann fær treyju númer 10.

Gibbs-White er 22 ára miðjumaður og er sextándi leikmaðurinn sem Forest kaupir í sumarglugganum.

Gibbs-White hefur byrjað báða leiki Wolves á tímabilinu en hann fékk mikið lof fyrir frammistöðu sína með Sheffield United á síðasta tímabili en þar lék hann á lánssamningi.

Þeir sem Forest hefur keypt í sumar:
Taiwo Awoniyi
Neco Williams
Emmanuel Dennis
Orel Mangala
Moussa Niakhate
Giulian Biancone
Remo Freuler
Omar Richards
Lewis O'Brien
Harry Toffolo
Brandon Aguilera
Jesse Lingard
Cheikhou Kouyate
Wayne Hennessey
Dean Henderson
Morgan Gibbs-White

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Arsenal000
2Aston Villa000
3Bournemouth000
4Brentford000
5Brighton000
6Chelsea000
7Coventry000
8Crystal Palace000
9Everton000
10Fulham000
11Hull City000
12Ipswich Town000
13Leeds000
14Liverpool000
15Manchester City000
16Manchester Utd000
17Newcastle000
18Nott. Forest000
18West Ham38-1939
19Burnley38-3722
19Sunderland000
20Wolves38-4120
20Tottenham000
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.