Giacomo Raspadori frá Sassuolo til Napoli (Staðfest)

Giacomo Raspadori skoraði tíu mörk í Seríu A á síðustu leiktíð

Mynd: EPA

Napoli hefur gengið frá eins árs lánssamningi við ítalska sóknarmanninn Giacomo Raspadori en hann kemur til félagsins frá Sassuolo. Napoli mun gera skiptin varanleg fyrir 30 milljónir evra á næsta ári.
Raspadori er 22 ára gamall og myndaði gríðarlega öfluga sókn með þeim Domenico Berardi og Gianluca Scamacca hjá Sassuolo á síðustu leiktíð.
Frammistaða hans með Sassuolo síðustu ár hefur skilað honum sæti í ítalska landsliðshópnum.
Sassuolo samþykkti tilboð Napoli í Raspadori á dögunum og voru skiptin staðfest í dag. Hann verður lánaður í eitt tímabil og mun Napoli svo kaupa hann fyrir 30 milljónir evra á næsta ári.
Raspadori skoraði 10 mörk í Seríu A á síðustu leiktíð en nú hefur Sassuolo misst tvo lykilmenn frá síðasta tímabili þar sem Gianluca Scamacca gekk í raðir West Ham United.

🤝 Welcome Giacomo! 🤩
— Official SSC Napoli (@en_sscnapoli) August 20, 2022
👉 https://t.co/Iy3SLLN67I
💙 #ForzaNapoliSempre pic.twitter.com/FCGmtZuKcI