Fotbolti.net
22.08.22 - 16:30
Elvar Geir Magnússon

Bertrand Traore lánaður til Istanbúl (Staðfest)

Bertrand Traore lánaður til Istanbúl (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Bertrand Traore, sóknarleikmaður Aston Villa, hefur gengið í raðir tyrkneska félagsins Istanbul Basaksehir á lánssamningi út tímabilið.

Þessi 26 ára gamli landsliðsmaður Búrkína Fasó hefur ekki spilað fyrir Villa í þeim þremur leikjum sem búnir eru á tímabilinu.

Istanbul Basaksehir hafnaði í fjórða sæti tyrknesku deildarinnar á síðasta tímabili en liðið sló Breiðablik úr leik í forkeppni Sambandsdeildarinnar nýlega.

Traore hefur skorað sjö mörk í 45 leikjum fyrir Villa en hann gekk í raðir félagsins frá Lyon 2020.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.