Man City lánar Kabore til Marseille (Staðfest) - Fleiri lánaðir út


Mynd: EPA


Mynd: EPA
Manchester City er búið að lána miðvörðinn efnilega Issa Kaboré til Marseille út tímabilið. Lánssamningnum fylgir 20 milljón evra söluákvæði, sem nemur 17 milljónum punda.
Kabore er einn af mörgum leikmönnum sem Man City lánar út í sumar og er partur af gífurlegri uppbyggingu innan herbúða Marseille. Félagið er einnig búið að krækja í Nuno Tavares á láni frá Arsenal eftir að hafa keypt öfluga leikmenn á borð við Jonathan Clauss og Jordan Veretout.
Marseille var einnig að krækja í hinn bráðefnilega Sayha Seha frá Troyes, systurfélagið Man City. Seha kemur til Marseille fyrir 10 milljónir evra en hann er aðeins 17 ára og var eftirsóttur af Manchester United í sumar.
Aðrir leikmenn sem City er búið að lána út að undanförnu eru Nahuel nafnarnir, Ferraresi og Bustos. Þeir eru báðir 23 ára gamlir og voru á láni hjá Estoril og Girona á síðustu leiktíð.
Þá er Callum Doyle farinn á lánssamningi til Coventry City eftir að hafa gert vel með Sunderland á síðustu leiktíð. Doyle er aðeins 18 ára gamall og leikur sem miðvörður.
Tommy Doyle er farinn til Sheffield United, Lewis Fiorini til Blackpool, Diego Rosa til Vizela og svona má halda áfram að telja efnilega leikmenn á snærum félagsins.


