Fotbolti.net
24.08.22 - 11:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Fyrrum aðstoðarmaður Van Gaal tekur við Hollandi (Staðfest)

Jonker hér til vinstri.

Jonker hér til vinstri.

Canon

Mynd: KNVB

Hertz
Hollenska fótboltasambandið hefur loksins ráðið nýjan þjálfara fyrir kvennalandslið sitt.
Englendingurinn Mark Parsons var látinn fara eftir slakan árangur á Evrópumótinu og hefur hollenska fótboltasambandið síðustu vikurnar leitað að nýjum þjálfara.

Núna er búið að ganga frá ráðningu og er hinn 59 ára gamli Andries Jonker mættur til starfa.

Jonker er með áhugaverða ferilskrá, en hann hefur komið víða við. Hann aðstoðarstjóri Barcelona 2002-03 og svo var hann aðstoðarstjóri Louis van Gaal hjá Bayern München. Þá var hann yfirþjálfari akademíunnar hjá Arsenal fyrir nokkrum árum.

Síðast var hann aðalþjálfari Telstar í Hollandi en hann hefur aldrei þjálfað kvennalið áður.

Fyrsta alvöru verkefnið hans verður gegn Íslandi í næsta mánuði í hreinum úrslitaleik um að fara beint á HM. Það er mjög líklegt að Holland verði að vinna þann leik til að komast beint á mótið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.