Emerson Palmieri til West Ham (Staðfest)

Emerson Palmieri

Mynd: Getty Images

Emerson Palmieri

Mynd: Getty Images
Ítalski vinstri bakvörðurinn Emerson Palmieri er genginn í raðir West Ham frá Chelsea en þetta kemur fram í tilkynningu frá Hömrunum í kvöld.
Emerson, sem er 28 ára gamall, kom til Chelsea frá Roma árið 2018.
Hann eyddi síðustu leiktíð á láni hjá franska félaginu Lyon en það var ljóst að hann væri ekki partur af plönum Thomas Tuchel.
West Ham hefur nú fest kaup á Palmieri. Hann kostar félagið 15 milljónir punda í heildina.
Palmieri skrifaði undir fimm ára samning við West Ham og er þetta sjöundi leikmaðurinn sem félagið fær í sumar.
West Ham hefur eytt 120 milljónum punda í glugganum í sumar og gæti verið von á frekari styrkingu á lokadögum gluggans.

West London ➡️ East London
— West Ham United (@WestHam) August 23, 2022
Welcome, @emersonpalmieri! 🙌 pic.twitter.com/JUQfxah2fB